Ég var bara búin að gleyma þessu bloggi mínu...
Já.... ég veit ekki hvað þetta er með mig....
Ég var bara búin að gleyma þessu bloggi sem ég er með...
En já, svona eitthvað af mér. Ég er bara alltaf að vinna og hanga heima. Já ég veit að það er bara frekar sorglegt...
En hvað á maður að gera annað. Jú, seinast vika var ekki bara vinna. Ég ákvað að plata Davíð og Badda í bíó á mánudaginn og tóks mér það. Fórum á WANTED. Ekkert smá góð mynd. Mæli með henni. Jaaa.. svo var ég rosalega dugleg á þriðjudaginn og þreif og tók til hjá mér sem minnir mig á að ég þarf víst að fara að gera það aftur núna. En já þegar ég var búin að þrífa þá ákvað ég að vera dugleg og bakaði. Já skohh mig, ég kann þetta alveg. Og það vill svo til að þegar ég baka þá er það ávísun á gesti. Og ég var rosalega góð og hringi í Davíð og lét hann vita og bauð honum nú að kíkja í kaffi og nýbakaða köku. Jú það hélt hann nú. Að hann myndi láta sjá sig. En nei, ekki kom hann. En Laeila kom þó og bragðaði á kökunni góðu.
En Davíð lét svo verða að því að koma í gær loksins. Og viti menn. Ég er ekki frá því að hann hafi verið svangur..... Það var búið að taka smá af kökunni og Davíð kláraði hana svo næstum því í gær.
EN já... Bara svo þið vitið það öll, þá er ég komin í sumarfrí og er alveg heima... Endilega kíkiði við..
Kv. Gauja er ein í heiminum
